Haraldur Ingi Þorleifsson, stofnandi Ueno og fyrrverandi yfirmaður hjá Twitter, er tekjuhæsti Íslendingurinn samkvæmt úttekt Frjálsrar verslunar. Haraldur Ingi var með um 46 milljónir króna í mánaðartekjur á síðasta ári.

Haraldur Ingi Þorleifsson, stofnandi Ueno og fyrrverandi yfirmaður hjá Twitter, er tekjuhæsti Íslendingurinn samkvæmt úttekt Frjálsrar verslunar. Haraldur Ingi var með um 46 milljónir króna í mánaðartekjur á síðasta ári.

Þetta kemur fram í Tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kemur í allar helstu verslanir landsins á morgun en blaðinu verður dreift til áskrifenda á laugardaginn. Álagningarskrá Skattsins var gerð opinber í dag en er einungis birt á skrifstofu Skattsins.

Í Tekjublaði Frjálsrar verslunar verður greint frá tekjum um 4.000 Íslendinga, allt frá forstjórum til áhrifavalda á samfélagsmiðlum.

Hægt er að kaupa Tekjublaðið í forsölu hér. Að auki verður blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins.

Um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2022 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og öðrum aukastörfum og hlunnindum vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2021, sem greiddur var árið 2022. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Hafa verður í huga að inni í tekjunum getur líka verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignarsparnaði hjá lífeyrissjóði.