Þorsteinn Loftsson, lyfjafræðiprófessor við Háskóla Íslands, er launahæstur á lista yfir tekjur skólafólks. Launatekjur hans á síðasta ári námu 4 milljónum króna á mánuði.
Í öðru sæti listans er Sesselja Sigurborg Ómarsdóttir, sem er einnig prófessor í lyfjafræði við sama skóla. Hún var með 3,9 milljónir króna í mánaðartekjur á síðasta ári. Í þriðja sæti er svo Vilhjálmur Egilsson, fyrrverandi rektor Háskólans á Bifröst, með 3,1 milljón króna á mánuði.
Allir á listanum eru með yfir eina milljón króna í launatekjur á mánuði. Þetta er meðal þess sem finna má í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem komið er í verslanir, en blaðið hefur að geyma upplýsingar um tekjur um 4.000 Íslendinga.
Tíu tekjuhæsta skólafólkið:
- Þorsteinn Loftsson, lyfjafrprófessor HÍ - 4 milljónir króna
- Sesselja Sigurborg Ómarsdóttir, prófessor í lyfjrafr. HÍ - 3,9 milljónir
- Vilhjálmur Egilsson, fyrrv. rektor Bifröst - 3,1 milljón
- Ingileif Jónsdóttir, prófessor í ónæmisfræði HÍ - 3,1 milljónir
- Ari Kristinn Jónsson, fv. rektor HR - 2,8 milljónir
- Kristín Huld Haraldsdóttir, lektor skurðlæknisfræði HÍ - 2,5 milljónir
- Tómas Þór Ágústsson, yfirlæknir sérnáms í lækningum - 2,5 milljónir
- Gylfi Magnússon, dósent og forseti viðskfrd. HÍ - 2,3 milljónir
- Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor HÍ, stjórnarformaður OR - 2,3 milljónir
- Bjarni Elvar Pétursson, próf. tannlæknad. HÍ - 2,2 milljónir
Tekjublað Frjálsrar verslunar er komið út. Finna má blaðið á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak hér.