Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, var launahæsti fjölmiðlamaðurinn samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í vikunni en hann sat efst á þeim lista með 6.687 milljónir króna.
Þar á eftir kom samstarfsmaður hans og framkvæmdastjóri Árvaks, Haraldur Johannessen, en hann var með 3.576 milljónir í laun.
Í þriðja sæti var Benedikt Sigurðsson, sem var fréttamaður RÚV á síðasta ári, með 2.350 milljónir og hart á eftir honum var Auðunn Blöndal með 2.126 milljónir. Guðmundur Benediktsson, íþróttafréttamaður á SÝN, var þá með 1.971 milljón og Þóra Arnórsdóttir, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, var með 1.937 milljónir.
Neðarlega á listanum var Sölvi Tryggvason, hlaðvarpsstjórnandi, en hann var með 212 þúsund krónur. Björn Ingi Hrafnsson og Ingibjörg Lind Karlsdóttir greiddu ekkert útsvar í fyrra.
Hægt er að kaupa Tekjublaðið hér. Að auki er blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins.
Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2024 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.