Óskar Magnússon, rithöfundur, bóndi og stjórnarformaður Eimskips, var launahæsti rithöfundur landsins með 3,7 milljónir í laun. Óskar hefur meðal annars gefið út bækurnar Predators, Dýrabitar og Verjandinn.
Þetta kemur fram í Tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út á þriðjudaginn og er nú fáanlegt í helstu verslunum landsins.

Næstefstur á listanum yfir launahæstu rithöfunda landsins var glæpasagnahöfundurinn Ragnar Jónasson en hann var með 1,7 milljónir í laun. Á eftir honum má finna Jón Kalman Stefánsson með tæpar 1,4 milljónir í mánaðarlaun.
Hægt er að kaupa Tekjublaðið hér. Að auki er blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins.
Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2023 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.