Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins (SI) og stjórnarformaður Kviku banka, trónir á toppi lista Tekjublaðs Frjálsrar verslunar í flokki hagsmunasamtaka og aðila vinnumarkaðarins. Sigurður var að jafnaði með 4.144 þúsund krónur í laun á mánuði miðað við greitt útsvar. Hann var á öðru sæti listans í síðustu útgáfu Tekjublaðsins.

Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) er í öðru sæti með 4.069 þúsund krónur í laun á mánuði en hún var í efsta sæti listans á síðasta ári. Friðbert Traustason, fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka starfsmanna fjámálafyrirtækja situr svo í þriðja sæti, en hann var með nærri 3,6 milljónir á mánuði í fyrra.

Halldór Benjamín Þorbergsson, sem lét fyrr í sumar af störfum sem framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og tók við sem forstjóri Regins, var með rúmlega 3,5 milljónir á mánuði á síðasta ári.

Stefán Ólafsson, sérfræðingur hjá stéttarfélaginu Eflingu og stjórnarformaður Gildis lífeyrissjóðs, er í sjöunda sæti listans með rúmlega 2,5 milljónir á mánuði að jafnaði á síðasta ári.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, var með 1,6 milljónir í laun á mánuði i fyrra og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, var með 1.141 þúsund krónur á mánuði.

Tekjur tíu hæstu á mánuði:

  1. Sigurður Hannesson, frkvstj. SI - 4,1 milljónir kr.
  2. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, frkvstj. SFS - 4,1 milljónir kr.
  3. Friðbert Traustason, fv. frkvstj. Samt. starfsm. fjármfyrirt. - 3,6 milljónir kr.
  4. Halldór Benjamín Þorbergsson, frkvstj. SA – 3,5 milljónir kr.
  5. Yngvi Örn Kristinsson, hagfr. hjá SFF - 3,4 milljónir kr.
  6. Perla Ösp Ásgeirsdóttir, fv. frkvstj. áhættust. Landsb. – 3,1 milljónir kr.
  7. Stefán Ólafsson, sérfr. hjá Eflingu – 2,5 milljónir kr.
  8. Þórey Sigríður Þórðardóttir, frkvstj. Landssamt. lífeyrissj. – 2,5 milljónir kr.
  9. Karl Björnsson, fv. frkvstj. SAmb. Ísl. sveitarf. - 2,4 milljónir kr.
  10. Pétur Þorsteinn Óskarsson, frkvstj. Íslandsstofu - 2,3 milljónir kr.

Tekjublað Frjálsrar verslunar er komið út. Finna má blaðið á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak hér.

Til að lesa meira

Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.

Verð frá 2.749 kr. á mánuði