Steinþór Hróar Steinþórsson, betur þekktur sem Steindi, var tekjuhæsti grínisti landsins með tæpar 1,8 milljónir í laun. Þetta kemur fram í Tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út síðasta þriðjudag.

Næstefstur á listanum yfir launahæstu uppistandara er Bergur Ebbi Benediktsson, sem starfar einnig sem rithöfundur og lögfræðingur. Hann var með rúmar 1,1 milljón í laun.

Ari Eldjárn, sem var í fyrra launahæstur á listanum er nú í þriðja sæti með 1,09 milljónir og rétt fyrir neðan er hinn ástkæri leikari, grínisti og auglýsingagúrú Vilhelm Neto.

Hægt er að kaupa Tekjublaðið hér. Að auki er blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins.

Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2023 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.