Steinþór Hróar Steinþórsson, eða Steindi, var tekjuhæsti grínisti landsins í fyrra en miðað við greitt útsvar var hann með tæplega tvær milljónir króna á mánuði. Steindi var einnig á toppnum árið 2023 og var þá með tæpar 1,8 milljónir í laun.
Ari Eldjárn, sem var í þriðja sæti á listanum árið 2023, er nú kominn í annað sæti með rúmlega 1,1 milljón á mánuði. Hann hefur þá skipt um sæti við Berg Ebba Benediktsson, sem var í öðru sæti árið 2023 en er nú í þriðja sæti með ríflega milljón á mánuði.
Aðrir uppistandarar voru einnig á listanum en þar má nefna Hugleik Dagsson, sem var með 936 þúsund krónur á mánuði, Stefán Ingvar Vigfússon, sem var með 908 þúsund, og Dóra DNA sem var með 787 þúsund krónur.
Grínistinn og Íslandsbankafjárfestirinn Björn Bragi Arnarsson var með 441 þúsund krónur á mánuði og sat Anna Svava Knútsdóttir neðst á listanum með rúmar 286 þúsund krónur.
Hægt er að kaupa Tekjublaðið hér. Að auki er blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins.
Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2024 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.