Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, var tekjuhæsti bæjarstjóri landsins í fyrra samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar verslunar. Tekjur hennar á mánuði námu að jafnaði tæplega 3,2 milljónum króna á síðasta ári.

Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri Akraness, fylgdi fast á hæla Jónu en tekjur hans á mánuði námu að jafnaði tæplega 3,1 milljón króna árið 2023. Áður en Haraldur tók við sem bæjarstjóri sat hann á þingi fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins.

Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, var þriðji tekjuhæsti bæjarstjóri landsins í fyrra, með tæplega 2,9 milljónir í tekjur að mánuði að jafnaði.

Hægt er að kaupa Tekjublaðið hér. Að auki er blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins.

Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2023 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.