Sigurður Bjarnason, skipstjóri hjá Loðnuvinnslunni, er launahæstur á lista yfir tekjur sjómanna og útgerðarmanna. Launatekjur hans á síðasta ári námu 6 milljónum króna á mánuði.
Í öðru sæti listans er Bergur Einarsson, skipstjóri á Hoffelli SU, sem var með 5,6 milljónir króna í mánaðartekjur á síðasta ári. Í þriðja sæti er svo Tómas Kárason, skipstjóri á Beiti NK, með 5,4 milljónir króna á mánuði.
Allir á listanum eru með yfir eina milljón króna í launatekjur á mánuði. Þetta er meðal þess sem finna má í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem komið er í verslanir, en blaðið hefur að geyma upplýsingar um tekjur um 4.000 Íslendinga.
Tíu tekjuhæstu sjómenn og útgerðarmenn:
- Sigurður Bjarnason, skipstj. Loðnuvinnsl. - 6 milljónir króna
- Bergur Einarsson, skipstj. Hoffelli SU - 5,6 milljónir
- Tómas Kárason, skipstj. Beiti NK - 5,4 milljónir
- Albert Sveinsson, skipstj. Víkingur AK - 5,1 milljón
- Kristinn Grétar Rögnvarsson, skipstj. á Jón Kjartans. SU 111 - 5,1 milljón
- Sturla Þórðarson, skipstj. Beiti, Nesk. - 4,9 milljónir
- Runólfur Runólfsson, skipstj. Bjarna Ólafssyni AK - 4,8 milljónir
- Magnús Ómar Sigurðsson, skipstj. Fjarðabyggð - 4,7 milljónir
- Hálfdán Hálfdánarson, skipstj. Berki NK, Neskaupstað - 4,7 milljónir
- Hjörvar Hjálmarsson, skipstj. Berki Nesk. - 4,6 milljónir
Tekjublað Frjálsrar verslunar er komið út. Finna má blaðið á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak hér.
Til að lesa meira
Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.
Verð frá 2.749 kr. á mánuði