Stærstu verkfræðistofur landsins hafa líkt og byggingarfyrirtæki og steypustöðvar notið góðs af auknum umsvifum á síðustu árum. Samanlagðar tekjur tíu stærstu verkfræðistofanna námu rúmlega 33 milljörðum króna í fyrra, samanborið við 28,4 milljarða árið 2022 og 23,9 milljarða árið 2021.

Efla er líkt og undanfarin ár stærsta verkfræðistofa landsins þegar horft er til tekna. Tekjur verkfræðistofunnar námu 11 milljörðum og jukust þó nokkuð frá fyrra ári, eða um 22%. Verkís kom næst á eftir en tekjur verkfræðistofunnar námu rétt rúmlega 9 milljörðum króna á síðasta ári. Tekjurnar jukust um nærri fjórðung frá fyrra ári. COWI, áður Mannvit, fylgdi svo á eftir risunum tveimur með 6,4 milljarða króna veltu árið 2023 en tekjur stofunnar jukust um 12% á milli ára.

Segja má að þrjár stærstu verkfræðistofurnar Efla, Verkís og COWI hafi verið í ákveðnum sérflokki hvað tekjur varðar en tekjur þeirra allra hafa verið yfir 5 milljörðum króna á síðustu árum. Næsta fyrirtæki sem kemur þar á eftir tekjulega séð, VSÓ ráðgjöf, hefur verið með tekjur á bilinu 1,8-2,1 milljarðs króna. Þessar fjórar stærstu verkfræðistofur hafa allar verið reknar með hagnaði frá 2019.

Leiðrétting: Í upphaflegri útgáfu fréttarinnar var velta Eflu vanmetin um tæplega tvo milljarða króna þar sem fyrir mistök var stuðst var við móðurfélagsreikning en ekki samstæðureikning verkfræðistofunnar.

Nánar er fjallað um málið í bók Frjálsrar verslunar, 500 stærstu, sem var að koma út. Hægt er að festa kaup á bókinni hér.