Glaðlegi nikótínpúðasalinn Sven heldur hverju hverfinu á fætur öðru á höfuðborgarsvæðinu í gíslingu og breytir börnum í nikótínþræla.
Þetta kann að hljóma eins og hrollvekja úr smiðju metsölurithöfundar en lýsir aðstæðum íslenskra barna á höfuðborgarsvæðinu að mati Höllu Hrundar Logadóttur, þingmanns Framsóknarflokksins. Ef marka má orð hennar hefur Sven skipað sér í flokk með kettinum Klóa og Gotta, dáðustu markaðsfígúrum landsins meðal yngri kynslóðarinnar sem hvetja börn til að neyta vara frá Mjólkursamsölunni.
Hrafnarnir taka vitaskuld undir með Höllu Hrund að nikótínpúðaneysla barna sé hið versta mál og fagna um leið að hún hafi loks fundið sitt pólitíska erindi.
Beinast liggur við að banna nikótínsölu í verslunum í eða við íbúabyggð og færa hana á afskekkta staði þar sem litlar sem engar líkur eru á að börn muni eiga leið hjá. Þannig gæti Korputorg öðlast nýtt hlutverk sem nikótínmiðstöð höfuðborgarsvæðisins.
Gamli miðasöluskálinn við Hvalfjarðargöngin gæti síðan svalað nikótínþörf Vestlendinga.
Huginn og Muninn er einn af föstu skoðanadálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu.