Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og formaður heilbrigðisnefndar Reykjavíkur, var til viðtals á Bylgjunni á mánudag.

Tilefnið var umfjöllun fjölmiðla um erfiðleika veitingamanna og annarra rekstraraðila við að fá umsóknir um starfsleyfi samþykktar af heilbrigðiseftirliti borgarinnar. Til dæmis hefur verið fjallað um bakarí sem beið í hálft ár eftir svari við umsókn, og veitingastaðurinn Kastrup var lokaður í sex vikur eftir eigendaskipti vegna tafa og skriffinnsku. Þá hafa starfsmenn heilbrigðiseftirlitsins, af óútskýrðum ástæðum, staðið í vegi fyrir að veitingamenn við Laugaveg fái að setja upp langborð við göngugötuna. Þrátt fyrir þetta sagði Hjálmar að öll þessi mál væru í „himnalagi“.

Hrafnarnir tóku eftir því að hann sagði nauðsynlegt að fólk fengi að segja álit sitt áður en starfsemi fengi starfsleyfi, og tók meðal annars dæmi um ef einhver ætlaði að opna bílasprautunarverkstæði í íbúðabyggð. Hrafnarnir skilja hins vegar ekki af hverju Hjálmar tók ekki nærtækara dæmi – að íbúar ættu að fá að segja álit sitt ef til stæði að reisa risastóra kjötvinnslu í túnfætinum heima hjá þeim. En það er önnur saga.

Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins.