Hafi einhver efast um erindi Vinstri grænna í pólitík eftir að þeir féllu af þingi þá ætti hinir sömu að lesa umsögn flokksins um tíu tillögur að flokkun vindmylluverkefna í samráðsgátt stjórnvalda
Þar kvartar Svandís Svavarsdóttir og hennar fólk í VG yfir því að það sé alls ekkert búið að móta neina stefnu um hvernig vindmyllur eigi að vera á litinn.
Hrafnarnir taka undir þetta enda væri til að mynda fráleitt að reisa lillaðar vindmyllur einhvers staðar úti á landi og að ekki sé talað um að reisa vindmyllur sem kallast alls ekkert á við litakort Friðriks Ómars sem er aðgengilegt í flestum Byko-verslunum. Þá telur VG það með öllu óásættanlegt að útlendingar hagnýti vindinn í hagnaðarskyni – að vísu með þeirri undantekningu að þeir megi reisa litlar vindmyllur „sem eru fyrst og fremst ætlaðar til staðbundinna einkanota “ eins og það er orðað í umsögninni.

Hrafnarnir geta ekki varist þeirri hugsun að þessi tillaga sé sérsniðin að Kjartani galdrakarli helsta óvini strumpanna, en það er annað mál.