Það þarf þorp til þess að ala upp barn. Þetta veit Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra. Þess vegna leitaði hann til þegna sinna á samfélagsmiðlum er honum varð ljóst að kreditkort hans var glatað.

Spurði hann á Facebook síðu sinni á laugardag hvernig ætti að tilkynna um stolið kort því honum hafi ekki tekist að hafa uppi á neyðarsíma, hvorki hjá Visa né Landsbankanum.

***

Ráðherrann var forviða yfir því að hvergi hafi hann getað hringt í kortafyrirtækið eða í bankann til að loka því og sækja um nýtt. Ekkert neyðarnúmer hafi verið gefið upp á heimasíðum Landsbankans eða Visa.

Eins og fram kemur í umfjöllun Morgunblaðsins um þessa miklu svaðilför Eyjólfs fær maður valkost um að komast í samband við neyðarþjónustu þegar hringt er í þjónustuver Landsbankans. Auk þess er neyðarnúmerið aðgengilegt á heimasíðu bankans.

Úr þessu gat Eyjólfur innviðaráðherra ekki fundið. Það kom ekki að sök þar sem vinir hans á Facebook gátu leiðbeint honum hvernig maður lokar kortinu í bankaappinu.

***

Svaðilfarir og hetjudáðir hafa verið skáldum innblástur um allar aldir. Týr leggur til að auk tveggja aðstoðarmanna fái Eyþór heimild til þess að ráða sér sérstakt hirðskáld. Það myndi fá það verðuga hlutverk að kveða Eyjólfskviðu til enda:

Undrandi var Eyjólfur,

er hann vaknaði,

og síns korts saknaði,

kaldra félaða.

Skegg nam að hrista,

skör nam að dýja,

réð Sælandsbur

um að þreifast.

Týr er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi birtist fyrst í blaðinu sem kom út þann 28. maí 2025.