HMS svipti á dögunum hulunni af fasteignamat ársins 2026. Eins og Örn Valdimarsson, sviðsstjóri ráðgjafarsviðs PwC, benti á í viðtali við mbl.is var 9,2% hækkun matsins fyrst og fremst afleiðing af þróun fasteignaverðs.

Mesta hækkun á landinu er í Hörgársveit í Eyjafirði þar sem virði fasteigna mun hækka um 22% að meðaltali á milli ára.

Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri Hörgársveitar, lýsti yfir ánægju sinni með þetta í viðtali við RÚV enda til marks um að fólk sé til í að borga meira en áður fyrir fasteignir í sveitarfélaginu.

Margir sveitarstjórnarmenn, þá sérstaklega á vinstri vængnum, myndu einnig fagna því að fyrir vikið hækka fasteignagjöld einnig um nærri fjórðung á einu bretti. Snorri er aftur á móti ekki einn þeirra og sagði að þessi hækkun hlyti að kalla á það að álagningarprósentan yrði lækkuð á móti.

Það væri vel ef fleira fólk á sveitarstjórnarstiginu, t.d. í stærsta sveitarfélagi landsins, tækju Snorra sér til fyrirmyndar.

Huginn og Muninn er einn af föstu skoðanadálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu.