Bjarni Bjarnason, nýr forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, hefur verið nokkuð sannfærandi í störfum sínum fyrstu vikurnar. Margir hafa trú á að honum takist að straumlínulaga reksturinn, skera niður útgjöld og einbeita sér að kjarnastarfseminni. Sjálfsagt munu útlendingar eftir sem áður hafa áhuga á jarðvarmavirkjunum OR og kíkja í heimsókn.

En móttaka þeirra þarf ekki að kosta mikla peninga. Fyrst munu þeir hitta forstjórann Bjarna, næst keyrir meirabílprófs-Bjarni þá upp á Hellisheiði, þar tekur leiðsögumaðurinn Bjarni á móti þeim og lóðsar um svæðið. Á eftir gæti jafnvel pungaprófs- Bjarni siglt með gestina um sundin blá. Fjölhæfari forstjóri á Íslandi er varla til.