Ég mun leggja fram breytingartillögu við fjármálaáætlun sem ríkisstjórnin hefur lagt fram á Alþingi fyrir árin 2026-2030. Í áætluninni er gert ráð fyrir að felld verði niður samsköttun hjóna og sambúðarfólks milli skattþrepa. Einnig er gert ráð fyrir brottfalli heimildar til að ráðstafa ónýttum persónuafslætti til greiðslu fjármagnstekjuskatts. Ég legg til að fallið verði frá þessum áformum og gott betur.
Breytingartillögur ríkisstjórnarinnar eru rökstuddar með markmiðum ríkisstjórnarinnar um að bæta skattskil og gera innheimtu skilvirkari, loka glufum og fækka undanþágum í skattkerfinu.
Bætt skattskil?
Núverandi ríkisstjórn er ekkert frábrugðin þeim sem á undan hafa komið í afstöðu til skattskila. Auðvitað er bæði réttmætt og skylt að berjast gegn skattsvikum. Verkefnin eru ærin á því sviði. Hjón sem nýta ónotað skattþrep hvors annars eru hins vegar ekki skattsvikarar. Skýr lagaheimild til samsköttunar tryggir frekar skattskil tekjuhærri makans en hitt. Það er ómaklegt af ríkisstjórninni að spyrða samsköttun hjóna við skattsvik.
Glufur?
Með samsköttun hjóna er ekki verið að fara í kringum ákvæði skattalaga. Það er líka óskammfeilið af ríkisstjórninni að ýja að því að hjón séu að koma sér hjá lögmæltum skattgreiðslum með því að nýta skýra lagaheimild til samsköttunar.
Undanþágur?
Ósvífnustu rök ríkisstjórnarinnar fyrir afnámi samsköttunar hjóna hljóta hins vegar að vera þau að með því að heimila samsköttun hjóna sé ríkið að gefa eftir skatttekjur. Um sé að ræða ívilnun sem aðeins fáir geti nýtt sér. Ívilnun! Ríkissjóður á ekki sjálfkrafa allt sjálfsaflafé hins vinnandi manns. Það er engin „ívilnun“ að borga ekki100% skatt.
Með þessum málflutningi kastar ríkisstjórnin fyrir róða hugmyndinni um fjölskylduna sem hornstein í samfélagi okkar mannanna. Fjölskyldan er mikilvægasta velferðarkerfið. Innan fjölskyldna tökumst við á hendur ábyrgð á öðru fólki, mökum, börnum, öldruðum foreldrum og jafnvel fjarskyldari ættmennum. Þá kveða lög á um sameiginlega ábyrgð hjóna á skattaskuldum hvors annars en ríkisstjórnin hefur ekki áform um að fella hana niður.
Sameiginleg ábyrgð hjóna er gegnumgangandi stef í íslenskri löggjöf sem lýtur að málefnum fjölskyldunnar. Bæði er málefnalegt og æskilegt að standa vörð um þetta elsta tryggingarfélag mannkyns. Það hafa stjórnvöld gert með margvíslegum hætti sem miða að fjárhagslegum stöðugleika fjölskyldna. Samsköttun hjóna er dæmi um viðleitni að þessu leyti.
Eftir að fjölþrepaskattkerfi var tekið upp skiptir máli fyrir mörg hjón að ófyllt skattþrep tekjulægri hjóna geti flust til hins. Augljóslega varðar þetta þau hjón litlu hafi báðir aðilar sömu tekjur. Hins vegar skiptir það þau hjón miklu þar sem annað hjóna er mun tekjulægra en hitt, jafnvel tekjulaust. Bæði hjónin bera jafn mikla ábyrgð á fjölskyldum sínum. Verði heimild til samsköttunar felld niður verður heildarskattbyrði þessara hjóna mjög ólík. Hjón sem hafa jafnháar tekjur munu bera minni skattbyrði en hjón sem afla ójafnra tekna. Þau síðarnefndu munu þurfa að bera aukna skattbyrði. Skattahækkun.
Þvert á móti
Núgildandi reglur heimila aðeins flutning á ónýttu skattþrepi þegar annað hjóna nær ekki að fullnýta miðþrepið. Það er þannig heimilað að færa tekjur úr efsta skattþrepinu niður í miðþrep. Ekki úr miðþrepi niður í lægsta þrep. Á meðan þrepaskipt tekjuskattskerfi er við lýði verður hins vegar við útfærsluna að leitast við að tryggja jafnræði með hjónum óháð því hvernig innbyrðis tekjuöflun þeirra er háttað. Þess vegna mun breytingartillaga mín fela í sér útvíkkun samsköttunar að þessu leyti.
Fjármagnstekjuskattur
Það er trúlega ekki á margra vitorði að ónýttan persónuafslátt hefur mátt nýta á móti fjármagnstekjuskatti. Langflestir hafa einhverjar tekjur og nýta þannig persónuafsláttinn. Þó er ekki loku fyrir það skotið að einhverjir gætu viljað nýta sér það að segja sig ekki til sveitar þótt þeir hafi engar atvinnutekjur. Maður getur t.d. verið í þeirri stöðu um tíma að hafa engar atvinnutekjur án þess að þiggja bætur eða lífeyrisgreiðslur en hafa fjármagnstekjur t.d. vegna útleigu fasteignar. Hvers vegna getur ríkisstjórnin ekki unnt þeim manni þess að nýta persónuafsláttinn sinn vegna fjármagnstekna?
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur ætlar að treysta á skattahækkanir við stjórn ríkisfjármála. Það er afleikur. Verra er þó að með andstöðu við samsköttun hjóna er ríkisstjórnin að taka sér stöðu gegn rótgrónum fjölskyldugildum.
Höfundur er þingmaður Miðflokksins.