Vegna umræðu um tengsl eiginmanns Álfheiðar Ingadóttur við svokölluð aflandsfélög þá fengu hrafnarnir ábendingu um það hvaðan nafnið á félaginu, Sýrey, gæti verið fengið. Þau hjónin munu eiga afdrep í Flatey í Breiðafirði og eyða drjúgum tíma á þeirri fögru eyju.
Norður af Flatey liggja eyjarnar Langey og Sýrey. Þeir sem siglt hafa um Sýreyjarsund, t.d. við veiðar, vita að þaðan blasir þorpið í Flatey við sjófarendum.
Það skyldi þó ekki vera að þaðan hafi nafnið á félaginu fræga verið fengið, sama fyrir hvern félagið var stofnað og í hvaða tilgangi?