Hrafnarnir eru almennt þeirrar skoðunar að nútímastjórnmálamenn séu hundleiðinlegir. Á því eru þó nokkrar undantekningar.
Að auki gætu auglýsingar flokkanna flestar verið frá Samgöngustofu eða Isavia. Sterílar, án nokkurs húmors og óskaplega yfirborðslegar.
Í dag birtist myndband frá Ungum sjálfstæðismönnum sem er eitt besta, ef ekki besta, kosningamyndbandið sem hefur birst fyrir kosningarnar á laugardag. Þar tekur formaður Heimdallar Samfylkinguna sundur og saman í háði.
En auðvitað er þetta auðvitað ekkert grín. Stór hluti þeirra sem ráða Samfylkingunni eru kommúnistar af gamla skólanum.
Studdu Sovétríkin allt fram á síðustu stund, keyrðu um á Lödum til að styðja sína menn og mættu í kokteilboð í sovéska sendiráðið.
Frá falli fyrirheitna ríkisins árið 1991 hafa þeir margir drukkið kampavín á kostnað íslenskra skattgreiðenda.