Benedikt Gíslasyni bankastjóra og hans fólki í Arion banka er mjög umhugað um að konur fjárfesti og ávaxti þar með sparnað sinn. Bankinn stóð á dögunum fyrir keppninni „Konur fjárfestum“ sem var eðli málsins samkvæmt einungis ætluð konum. Keppnin

Keppnin stóð yfir í mánuð og endaði 22. mars og snerist um að þátttakendur fjárfestu fyrir tíu milljónir í Kauphöllinni af sýndarfé gegnum appið Dyngjan. Markaðurinn var erfiður þennan mánuðinn og enduðu þátttakendur að meðaltali með tap af fjárfestingum. Þó högnuðust 130 konur á tímabilinu en tæplega 1500 tóku þátt.

Þarna var hið svokallaða „Herdísar-trade“ vinsælast en það er kennt við Herdísi Fjeldsted forstjóra Sýnar. Konurnar fjárfestu langmest í Sýn eða fyrir 1,5 milljarða og það gafst vel enda hækkaði félagið um 40% meðan keppnin stóð yfir. Afsannaðist þar með hið fornkveðna að konur séu konum verstar. Hrafnarnir ítreka þó önnur gömul sannindi um að ávöxtun í fortíð sé ekki ávísun á ávöxtun í framtíð – fyrirvari sem hefði mátt fylgja nýlegri skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um samanburð á ávöxtun íbúðarhúsnæðis og hlutabréfa, en það er önnur saga.

Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í blaðinu sem kom út 30. apríl 2025.