Það er ekki að sjá á skoðanakönnunum að hin breiða skírskotun sem stuðningsmenn Guðrúnar Hafsteinsdóttur töldu hana hafa sé yfirhöfuð til staðar.

Að minnsta kosti hefur sú ákvörðun formannsins að beita sér nánast ekkert gegn umdeildu og vanhugsuðu frumvarpi Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra um tvöföldun veiðigjalda ekki skilað sér í auknu fylgi.

Skal engan undra enda hefur erindi flokksins til þessa verið að standa vörð um öflugt atvinnulíf og verðmætasköpun. Hrafnarnir telja að barátta Njáls Trausta Friðbertssonar þingmanns flokksins fyrir tollastríði á hendur Kínverjum til að bjarga rekstrargrundvelli kísilverksmiðjunnar á Bakka sé ekki til þess fallin að auka fylgið.

Flokknum er þó ekki alls varnað og sumir þingmenn hans hafa átt góða spretti að undanförnu. Má þannig nefna að Jón Pétur Zimsen tók upp á því á dögunum að úða í sig eyrnameðali hunds síns, hennar Kviku.

Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi birtist fyrst í blaðinu sem kom út þann 28. maí 2025.