Gunnari Smára Egilssyni, stofnanda Sósíalistaflokksins, var bolað úr framkvæmdastjórn flokksins á aðalfundi. Sannast þar enn og aftur hið fornkveðna um að byltingin éti börnin sín.
Davíð Þór Jónsson segir farir sínar ekki sléttar og sakar Karl Héðinn Kristjánsson, formann ungra sósíalista, um að hafa leitt hallarbyltinguna.
Eins og Þórður Pálsson benti á er staðan kaldhæðnisleg þar sem varla er til sá bridgeklúbbur né það verkalýðsfélag í landinu sem sósíalistar hafa ekki reynt að komast til valda í með hallarbyltingu. Hrafnarnir furða sig á að Gunnar Smári og hinir sameignasinnarnir hafi ekki reynt hallarbyltingu í Liverpool-klúbbnum en hafa fullan skilning á því stuðningsmannafélag Manhcester United hafi fengið að vera í friði.
Ljóst er að sósíalistar mega illa við því að missa fleiri lykilleikmenn úr sínum röðum en Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður Leigjendasamtakanna, hefur sagt skilið við flokkinn. Yfirvofandi brotthvarf Trent Alexander-Arnold frá Liverpool bliknar í samanburði við það. Spennandi verður að sjá hvort sósíalistar verði jafn snarir í snúningum við að fylla í skarðið og Liverpool.
Hrafnarnir treysta sér illa til að benda á mögulegan arftaka en leggja þó til að Þór Saari fái það hlutverk að sætta stríðandi fylkingar.
Huginn og Muninn er einn af föstu skoðanadálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu.