Týr áttar sig ekki almennilega á hvaða vegferð ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur er. Stjórnarliðar fóru af límingunum þegar stjórnarandstaðan taldi sig þurfa að ræða efnisatriði frumvarps Hönnu Katrínar Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, um hækkun veiðigjalda og hóf að garga „málþóf, málþóf“ í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum.
Ansi sérstök upphrópun svona í ljósi þeirrar staðreyndar að þingsköp takmarka ræðutíma þingmanna við fyrstu umræðu mála.
Hanna Katrín gekk enn lengra. Hún sakaði stjórnarandstöðuna um að vinna gegn hagsmunum þjóðarinnar í samtali við Vísi á dögunum. Það er ekki gæfulegt þegar ráðamenn eru farnir að útlista andstæðinga sína sem óvini þjóðarinnar. Það er stjórnarandstaðan sem er vandamálið – ásamt auglýsingum SFS – en ekki hið illa unna frumvarp og efnahagslegar afleiðingar á lögfestingu þess.
Ekki var fátið minna um helgina. Boðað var til þingfundar á laugardaginn og með því vildu stjórnarliðar sýna stjórnarandstöðunni hver það er sem ræður. Þingmenn voru skikkaðir til vinnu á laugardaginn en það voru einungis stjórnarandstæðingar sem mættu.
Letin kom í hausinn á stjórnarliðum þegar borin var upp sú tillaga að málið færi til efnahags- og viðskiptanefndar en ekki atvinnuveganefndar þar sem um skattahækkun er að ræða. Þá var þingfundi skyndilega frestað.
H H H
Reyndar voru þingmenn Viðreisnar í alþingishúsinu þennan laugardag. Þeir voru bara að gera allt annað en að styðja þetta mál ríkisstjórnarinnar í þingsal. Þannig birti María Rut Kristinsdóttir myndir af sér og Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í Smiðju, sem er einn af fundarsölum Alþingis, að ræða við ungt Viðreisnarfólk á samfélagsmiðlum. María Rut birti myndirnar með skilaboðunum: Viðreisn á langbestu grasrótina.
Týr er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi birtist fyrst í blaðinu sem kom út 15. maí 2025.