Hrafnarnir velta því fyrir sér hvort Ragnar Þór Ingólfsson, þingmaður Flokks fólksins og formaður fjárlaganefndar, sé með meðvitund.

Allavega heyrðist ekkert frá honum í síðustu viku þegar tilkynnt var að laun þingmanna myndu hækka um 85 þúsund krónur næstu mánaðamót og nema þá ríflega 1,6 milljónum króna á mánuði. Slíkar hækkanir hafa jafnan verið Ragnari tilefni til að ausa úr skálum reiði sinnar og fordæma sjálftökuna. Það virðist hins vegar greinilegt að tilvist drjúgs varasjóðs í kjölfar starfslokasamnings við VR hafi róað taugar hans og dregið úr áhuga á kjaramálum. Að minnsta kosti sagði hann ekki orð þegar stjórnarmeirihlutinn reyndi að hækka laun Jóns Gnarr, þingmanns Viðreisnar, með því að framlengja starf hinnar gagnslausu framtíðarnefndar Alþingis.

Hrafnarnir hvetja alla til að kynna sér starf þessarar fánýtu nefndar – með því að lesa fundargerðir hennar má sjá að verkefnin snúast um að skoða sviðsmyndir, ákveða hvert gæti verið gaman fyrir nefndarmenn að fara á framtíðarráðstefnur erlendis og, á milli þess, fá Berg Ebba Benediktsson framtíðarfræðing í kaffispjall.

Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í blaðinu sem kom út 11. júní 2025.