Hrafnarnir lásu um raunir Axels Þorsteinssonar bakara, en hann hefur í tvö hundruð daga beðið eftir að fá tilskilin leyfi frá borginni til að opna bakaríið Hygge við Barónsstíg

Vandræðaganginn má rekja aftur til þess tíma þegar bakaríið var staðsett í Héðinshúsinu og fyrirtækinu var skipt upp í rekstur bakarís annars vegar og veitingasölu hins vegar. Að sögn Axels þótti heilbrigðiseftirlitinu kolómögulegt að tvær kennitölur væru reknar í sama húsnæði, og því þurfti að finna bakaríinu nýjan stað – sem eftirlitið hafði þó gert alls kyns athugasemdir við.

Nýverið tók einnig gildi ný reglugerð, en samkvæmt henni þarf hvert einasta starfsleyfi að vera auglýst á vef heilbrigðiseftirlitsins í fjórar vikur áður en leyfið er veitt. Hver sem er getur sent inn kvörtun við leyfisveitinguna og þá hefur eftirlitið fjórar vikur til að vinna úr þeim.

Hrafnarnir hafa heyrt fleiri svipaðar sögur af herferð heilbrigðiseftirlitsins gegn atvinnurekstri í borginni að undanförnu. Það sem kemur þó hvað mest á óvart er að þetta skuli gerast í sömu borg og þar sem hægt er að reisa risastóra kjötverkun við hlið fjölbýlishúsa og fá starfsleyfi án athugasemda.

Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi birtist fyrst í blaðinu sem kom út 11. júní 2025.