Samstöðin er nýr ríkisrekinn fjölmiðill sem sendir út Gunnar Smára Egilsson áhrifavald að ræða við fólk sem annars væri upptekið í umræðuþáttum í ríkissjónvarpinu.
Hrafnarnir segja fjölmiðilinn ríkisrekinn enda lýsti áðurnefndur Gunnar Smári því yfir á sínum tíma að tugmilljóna þátttökustyrkur Sósíalistaflokksins fyrir framboð sitt í síðustu þingkosningum yrði notað í að fjármagna róttæka fjölmiðlun. Samstöðin er þó ekki róttækari en svo að hún flytur eingöngu viðtöl við fólk sem væri sem fyrr segir annars til sjón- eða útvarps á RÚV.
Þannig sáu hrafnarnir um helgina viðtal við Gylfa Magnússon stjórnarformann Orkuveitunnar þar sem hann ræddi um þá skoðun sína að sektir fyrir skattalaga- og samkeppnisbrot væru verðmætasta fjárfesting ríkisins. Þá skaut Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins upp kollinum á Samstöðinni um helgina og kvartaði sáran yfir því að stofnunin hans hefði ekki fengið að vaxa að umsvifum eins og aðrar ríkisstofnanir. Hrafnarnir telja að þessi orð segi allt sem segja þarf um vöxt ríkisumsvifa undanfarin áratug.
Huginn og Muninn er einn af skoðanapistlum Viðskiptablaðsins. Þessi birtist í blaðinu sem kom út 13. september.