Stjórnlyndasta fólk landsins er greinilega farið að leiðast hversu vel íþróttaáhugafólk hefur skemmt sér á vormánuðum. Þannig hafa gleðipinnar á borð við Árna Guðmundsson, formann foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum, og Skúla Helgason, borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, kallað kallað eftir að fallið verði frá áfengissölu á íþróttaleikjum.

***

Eins og ýmsar aðrar tillögur sem er gegnsýrðar af forræðishyggju er þessi settar fram í nafni forvarna- og lýðheilsusjónarmiða. Börn sæki íþróttakappleiki og því óboðlegt að bjóða upp á áfengi. Týr vill ekki gera lítið úr mikilvægi þessa en telur vel hægt að ná fram slíkum markmiðum án þess að beita boðum og bönnum.

Þvert á það sem stjórnlyndisfólk heldur fram hefur aukin sala áfengis á kappleikjum ekki haft neitt sérstakt vandamál í för með sér, annað en betri mætingu og meiri stemningu. Blessunarlega er það fáheyrt að óeirðir brjótist út á íþróttaviðburðum hér á landi og það hefur ekkert breyst.

***

Áfengissala hefur hjálpað fjárvana íþróttafélögum að auka tekjuöflun og ekki veitir af. Eins og forsvarsmenn íþróttafélaga hafa bent á hefur áfengissalan ekki verið neitt vandamál salan leiði einnig til aukinnar sölu á öðrum matvælum.

Er sanngjarnt að banna íþróttafélögum að selja áfengar veigar til að hafa vit fyrir fullorðnu fólki? Týr telur að svo sé ekki og tekur undir með Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, að íþróttafélögum sé treystandi til að skipuleggja söluna og fólki til að gæta hófs í neyslunni.

***

Íþróttir á meistaraflokksstigi eiga í samkeppni við menningarviðburði og aðra afþreyingu um tíma fólks. Á menningarviðburðum á borð við tónleika, lista- og leiksýningar er selt áfengi. Hið sama gildir um afþreyingu á borð við keilu, pílukast og golf. Börn eru tíðir gestir í öllu framangreindu.

Þeir sem vilja banna sölu áfengis á íþróttaleikjum þurfa að svara því hvort einnig eigi að banna söluna á menningarviðburðum og í afþreyingarstarfsemi. Týr reiknar þó með að umræddir aðilar væru hlynntir því að fara Sádi-arabísku leiðina í áfengismálum, enda æðsti draumur þeirra að ríkisvaldið stýri öllum athöfnum borgaranna.

Týr er einn af föstu skoðanadálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu.