Sumarið í ár er strax orðið betra en allt sumarið í fyrra og þó er júní rétt að byrja. Hitamet hafa fallið og ég horfði á heilan fótboltaleik hjá 4. flokki Þróttar í stuttbuxum. Það hefur aldrei gerst áður.

Fleiri met hafa fallið, frjálsar áfengisverslanir eru í sókn og seldu mikið af sumarlegum drykkjum í hitanum og velta Áfengis- og tóbaksverslun Ríkisins dróst umtalsvert saman í fyrra. Meira að segja fjármálaráðherra hlustaði á hið gamla og góða breska spakmæli „sell in May and go away“ er hann kláraði að selja hlut ríkisins í Íslandsbanka fyrir 90 milljarða og keypti svo til baka evru útgáfu ríkisins fyrir þriðjung upphæðarinnar, svo eitthvað af þessum fjármunum fer til góðra verka.

Það er ekki annað hægt en að horfa bjartsýn til næstu mánaða. Laugardalsvöllur eru orðinn grænn og fagur, flestir golfvellir einnig og tennisvellir tapa aldrei sínum lit. Hafnir landsins iða af hressum hobbýmönnum þó andvarp heyrist á skrifstofu Hafrannsóknarstofnunar við Hafnarfjarðarhöfn.

Þetta verður gott sumar, Bæirnir iða af tónleikahaldi og fótboltamótum, kaffibollarnir og sætabrauðið flæðir og stelpurnar okkar munu gera góða hluti á EM. Eftir að hafa eytt síðasta júlí í 4 gráðum og láréttri rigningu á N1- og Símamótinu, þá er ég fullviss um að í ár muni sólin skína á þessum sömu mótum.

Þeir finnast sem eru fúlir og sjá ástæðu til að mótmæla. Jafnvel í sumum tilfellum að mótmæla mótmælum og í verstu tilfellum að mótmæla mótmælum við mótmælum. En fyrir alla aðra er erfitt að vera í fýlu þessa dagana. Þessar góðu vikur hér á Íslandi eru betri en allt annað. Gular og appelsínugular viðvaranir gleymast á augabragði á góðri stund með vinum og fjölskyldu.

Til að lesa meira

Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.

Verð frá 5.995 kr. á mánuði