Frestur til framboðs til formanns og stjórnar VR rennur út næstkomandi mánudag. Nú þegar hefur Halla Gunnarsdóttir starfandi formaður boðið sig fram. Í dag steig svo Bjarni Þór Sigurðsson, sem situr í stjórn verkalýðsfélagsins, fram og bauð sig einnig fram til formanns.
Ljóst er að formannskjörið verður mikil lýðræðisveisla fyrir félagsmenn. Bjarni situr einnig í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna og samkvæmt upplýsingum á heimasíðu sjóðsins starfar hann sem sérfræðingur í húsnæðismálum hjá ASÍ.
Þaðan kom einmitt Halla áður en hún varð varaformaður VR og svo formaður þegar Ragnar Þór Ingólfsson var kjörinn á þing fyrir Flokk eldhúsinnréttingar Ingu Sælands. Halla hefur gegnum tíðina haft gott lag á að vekja sér athygli. Hún hefur á undanförnum árum verið mikill talsmaður þess að „það sé nóg til“ en það þurfi bara að hækka skatta óháð verðmætasköpun.
Þá hefur Halla verið ötull talsmaður kenninga ítalska hagfræðifurðufuglsins Clara Mattei um að niðurskurður í ríkisrekstri til þess að mæta ósjálfbærri skuldasöfnun sé í raun dulin leið auðvaldsins til að kúga öreigana – eitthvað sem íslenska millistéttin sem tilheyrir VR ræðir mikið sín á milli í ferðalögum sínum til Tene og Selva.
Vafalaust ræðir hún einnig þá skoðun Höllu að einungis sé stigsmunur en ekki eðlismunur á kúgun kvenna á Íslandi annars vegar og hins vegar kúgun klerkastjórnarinnar í Teheran á konum.
Áhugavert er að VR „sponsar“ nú í gríð og erg umfjöllun á samfélagsmiðlum í aðdraganda formannskjörsins að hún hafi persónulega ýtt úr vör átaki um inngildingu á vinnustöðum.
Kristín Gunnarsdóttir nefnd til sögunnar
Einhverjir telja heppilegt væri að frambjóðendur til formanns VR hefðu breiðari skírskotun en þau Halla og Bjarni hafa. Týr hefur haft spurnir af því að margir hafi komið að máli við Kristínu Gunnarsdóttur, markaðssérfræðingi hjá verkfræðistofunni EFLU, og hvatt hana til að bjóða sig fram.
Kristín hefur vakið mikla athygli að undanförnu fyrir hlaðvarpsútgerð sem hún heldur úti ásamt Ólöfu Skaftadóttir sérfræðingi hjá ráðgjafafyrirtækinu Athygli. Ólöf er einnig eiginleg guðmóðir núverandi ríkisstjórnar en samkvæmt heimildum Týs var það hún sem benti á Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur á tækifærin og skemmtanagildið sem fælist í því að mynda stjórn með Ingu Sæland, en það er önnur saga.
Hlaðvarpið heitir Komið gott og hefur slegið ferskan tón í íslenskri þjóðfélagsumræðu – er bráðfyndið andvarp millistéttarinnar yfir öllum þeim fjölda lukkuriddara og handhafa sannleikans sem tröllríða íslenskri þjóðfélagsumræðu.
Bjóði Kristín sig fram og næði kjöri yrði það ákveðið stílbrot í sögu formennsku VR á þessari öld. Kristín þykir fyndin og skemmtileg eins og áðurnefnt hlaðvarp endurspeglar og er að því leyti ólík öðrum formönnum VR á öldinni. Auk þeirra Höllu og Ragnars hafa meðal annars Stefán Einar Stefánsson og Ólafía Rafnsdóttir gengt formennsku í verkalýðsfélaginu frá aldamótum.
Týr er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins.