Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og hans fólk í fjármálaráðuneytinu lýsa réttilega frati yfir frumvarpi Ingu Sæland félagsmálaráðherra um tengingu bóta almannatryggingakerfisins við launavísitöluna. Verði frumvarpið að lögum mun það grafa undan sjálfbærni ríkisfjármála og áætlunargerð. Bótagreiðslur munu hækka við framleiðniaukningu og fjárfestingu í atvinnulífinu, svo einhver dæmi séu tekin.

Samt sem áður stígur Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra fram og segir fulla samstöðu ríkja um málið í ríkisstjórninni. Hún hefur kannski gleymt tilvist fjármálaráðherrans – lái henni hver sem vill. Það hefur gerst áður.

***

Í raun sagði forsætisráðherra að þverpólitísk sátt ríkti um málið á Alþingi. Týr telur það fyrst og fremst til marks um hversu mikið Kristrún hefur verið erlendis undanfarna mánuði. Það virðist vera lykillinn að vinsældum hennar.

Að minnsta kosti hafði Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, heyrt af þessari sátt. Hún gagnrýndi að svo viðamikið og afdrifaríkt mál hefði verið tekið til fyrstu umræðu svo skömmu fyrir þinglok.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, lét Guðrúnu heyra það í þinginu. Hann spurði hvort stjórnarandstaðan ætlaði „í alvörunni að reyna að hafa af lífeyrisþegum þá fjóra milljarða sem verið er að tryggja þeim með þessu frumvarpi“.

***

Þarna sést að ríkisstjórnin hugsar bara í upphæðum, en ekki um hvaða afleiðingar lagabreytingar kunna að hafa. Úr því að svo er — af hverju eru menn að láta fjóra milljarða duga? Af hverju ekki fimm eða sjö milljarða? Það væri rausnarlegra.

Týr veltir einnig fyrir sér af hverju menn ætla að nota íslensku launavísitöluna til viðmiðunar. Hún hefur einungis hækkað um 80% síðastliðinn áratug. Væri ekki meiri bragur á því að horfa til launavísitölunnar í Tyrklandi, sem hefur hækkað um tæplega tvö þúsund prósent á sama tímabili?

Slík útfærsla væri enn fremur mjög í takt við útfærslur ríkisstjórnarinnar á útreikningi veiðigjalda.

Týr er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í blaðinu sem kom út 11. júní 2025.