Hippókrates, faðir læknisfræðinnar, sagði fyrir um 2000 árum síðan að allir sjúkdómar hefjist í meltingarveginum. En rannsóknir í seinni tíð hafa staðfest þau orð.
Á vef Lyfju eru listaðir upp nokkrir punktar um áhrif og hlutverk heilbrigðrar þarmaflóru. Skoðum þá helstu.
- Jákvæð áhrif á meltingu og hægðir.
- Stjórnar efnaskiptum og ónæmisviðbrögðum.
- Jákvæð áhrif á samskipti heila og þarma.
- Jákvæð áhrif á geðheilsu s.s. kvíða og þunglyndi.
Þarmaflóran er mjög rík af bakteríum en til að stuðla að heilbrigði og jafnvægi bakteríanna í þörmunum er mikilvægt að innbyrða góðgerla. Hægt er að taka góðgerla í töfluformi en eins og með önnur bætiefni og vítamín er best að innbyrða þá í gegnum mat.
Matur sem er ríkur af góðgerlum:
- Kefir
- Ósykrað jógúrt
- Súrsað kál
- Kombutcha
- Lífrænt tempeh
- Misó
- Ostar (Gouda, Mozzarella)
*Listinn er af vef Lyfju.