Haustið 2024 var myndlistarmönnum boðið að taka þátt í forvali að lokaðri samkeppni sem Listasafn Reykjavíkur hafði umsjón með. Samkeppnin var haldin eftir reglum Sambands íslenskra myndlistarmanna (SÍM), með opnu forvali en lokuðum þátttakendalista. Markmiðið er að auka gæði og fegrun almenningsrýma í borginni, og sameinast Reykjavíkurborg og lóðarhafar um úverkefnið.
Dómnefnd, skipuð fulltrúuum lóðarhafa Festis ehf., Listasafns Reykjavíkur og SÍM, valdi þrjá listamenn úr umsóknum til að vinna tillögur: Önnu Júliu Friðbjörnsdóttur, Elínu Hansdóttur og Finn Arnar Arnarson. Dómnefndin metur hvernig verkið auðgar mannlíf í Vesturvin, fegrar eða virkjar vannýtt svæði og skapar spennandi umhverfi.
Niðurstaða dómnefndar liggur nú fyrir og hefur hún valið verk Önnu Júlíu Friðbjörnsdóttur sem vinningstillöguna. Í umsögn dómnefndar segir:
,,Listaverk Önnu Júlíu Friðbjörnsdóttur, Rif, er skúlptúr sem stendur á hringlaga undirstöðu, bronsafsteypa af rifbeini hvals á steyptri terrazzo skífu. Verkið er einnig gagnvirkur áttaviti þar sem höfuðáttirnar eru inngreyptar í skífuna og beininu má snúa þar sem það er fest á snúningslegu. Verkið tekur þannig mið af umhverfi sínu með vísunum í lífríki hafsins, siglingafræði og skipasmíði. Verkið er jafnframt þátttökuverk þar sem gestir og gangandi í inngarðinum í Vesturvin geta snúið beininu og leikið sér með verkið.
Gæði verksins felast í einfaldleika þess en jafnframt djúpum vísunum til umhverfisins og náttúrunnar. Hvalbeinið sem unnið er með er úr Íslandssléttbak sem er tegund í útrýmingarhættu. Verkið verður sýnilegt öllum sem eiga leið um garðinn, sem er almenningsrými, og getur vakið áhorfendur til umhugsunar og orðið kennileiti og áhugavert uppbrot í umhverfinu í Vesturvin. Litir terrazzo undirstöðunnar munu jafnframt setja svip á svæðið og vera svipmiklir úr íbúðunum í kring. Verkið er jafnframt einkennandi fyrir feril Önnu Júlíu og áhugaverður liður í þróun og framvindu hennar listsköpunar.“
Framkvæmdir við uppsetningu Rifs í Vesturvin hefjast vorið 2025.