Bandaríska körfuknattleiksdeild kvenna, WNBA, hefur nú í fyrsta sinn síðan 2008 bætt við nýju liði. Golden State Valkyries er þrettánda lið deildarinnar og er búist við því að tvö ný lið frá Toronto og Portland bætist við á næsta tímabili.

Á vef NBC News segir að samhliða stækkun WNBA hafi fjárhagur deildarinnar einnig aukist og er býst deildin við að þrefalda fjölmiðlatekjur sínar á komandi árum.

Árið 2026 mun deildin byrja ellefu ára 2,2 milljarða dala samning um fjölmiðlaréttindi. Í kjölfar þess sagði stéttafélag leikmanna sig úr núverandi kjarasamningi síðasta október og mun eyða næstu mánuðum í að semja um nýjan samning.

Caitlin Clark, leikmaður Indiana Fever, þénaði til að mynda 76.535 dali sem nýliði en nú mun hún fá lágmarkslaunahækkun í samræmi við átta ára 28 milljóna dala samning hennar við Nike.

Umboðsmaður Clark sagði ESPN í febrúar að hún hefði hjálpað við að auka vinsældir og áhorf WNBA eftir að hafa orðið stjarna við Háskólann í Iowa. Indiana Fever hafi til að mynda tekið á móti fleiri áhorfendum að meðaltali á sínum fyrstu 20 leikjum en NBA-liðið Indiana Pacers, sem deilir sama leikvangi, gerði á 41 leik.

Caitlin Clark fæddist árið 2002 í Des Moines í Iowa, þar sem hún gerðist körfuboltastjarna við háskóla ríkisins.
© EPA-EFE (EPA-EFE)

Heildaráhorf meðal sætishafa á WNBA-leikjum hefur einnig aukist frá 6.615 að meðaltali frá 2023 í 9.807 á síðasta ári. Þeir leikir sem Fever spilaði slógu einnig öll áhorfendamet fyrir WNBA og var meðaláhorf um 1,2 milljónir áhorfenda fyrir hverja útsendingu hjá ESPN.

Sala á varningi hefur einnig stóraukist en deildin greindi frá því að sala á vörum í gegnum verslunina Dick‘s Sporting Goods hafi aukist um 233% miðað við sama tíma í fyrra. Vörur sem tengjast Clark eru meðal 20 mest seldu leikmannavara í öllum íþróttagreinum og er hún í sjötta sæti meðal allra körfuknattleiksmanna, þar á meðal NBA.