Saga Birkin-töskunnar hófst árið 1981 þegar franska leikkonan Jane Birkin sat við hlið Jean-Louis Dumas, framkvæmdastjóra Hermès, á flugi frá París til London. Birkin, sem var þá þekkt fyrir sinn afslappaða og hagnýta stíl, kvaddi sér hljóðs og kvartaði undan því að hún fyndi enga handtösku sem væri bæði stílhrein og praktísk.

Dumas sá þetta sem tækifæri og bauðst þá til þess að búa til hina fullkomnu handtösku fyrir hana og skissaði töskuna upp á ælupoka í flugvélinni. Árið 1984 var Birkin-taskan svo kynnt til sögunnar. Þetta var hönnun sem tók tillit til athugasemda Birkin sjálfrar og hafði meðal annars breiðari botn og rúmgott innra rými, sem auðveldaði konum að bera með sér allar nauðsynjar sínar.

Eftirspurnin meiri en framboðið

Birkin-taskan er þekkt fyrir hátt verð og er hún ein af dýrustu handtöskum heims. Verð Birkin-töskunnar byrjar yfirleitt í kringum 10.000 bandaríkjadali, en getur auðveldlega farið upp í hundruð þúsunda, sérstaklega ef hún er úr sjaldgæfu leðri eða skreytt demöntum.

Eitt af því sem eykur eftirsóknina eftir Birkin-töskunni er skorturinn á henni. Hermès framleiðir takmarkað magn af þessum töskum á hverju ári og margir þurfa að bíða mánuðum eða jafnvel árum saman eftir að fá tösku. Þessi skortur eykur á eftirsóknina og verðgildi þeirra.

Umfjöllunina um Birkin töskuna er að finna í blaðinu Eftir vinnu sem kom út á miðvikudaginn. Áskrifendur geta lesið umfjöllunina í heild hér.