Síminn er að fara inn í sitt síðasta keppnistímabil sem sýningarrétthafi enska boltans og mun gera nokkrar tæknilegar og efnislegar uppfærslur sem eru hugsaðar til að gera þetta tímabil að besta tímabili Símans Sport, eins og segir í fréttatilkynningu frá félaginu.

Tækninni fleygi fram og Síminn sé að uppfæra fyrirkomulag útsendinga í takt við aðferðafræði framtíðarinnar, líkt og er hjá stærstu streymisveitum heims á borð við Netflix, Disney og Amazon. Gagnvirkni, leitarmöguleikar og aðgengileiki sé að aukast en hefðbundnar línulegar sjónvarpsrásir séu á undanhaldi. Síminn muni með þessu geta sýnt ótakmarkaðan fjölda leikja á sama tíma á sama stað. Það hafi t.a.m. reynst erfitt í gegnum tíðina að sýna frá öllum leikjum þegar margir leikir eru spilaðir á sama tíma.

„Hingað til hafa leikir verið aðgengilegir á línulegum rásum Símans Sport en nú munu leikir færast í sérstaka möppu í viðmóti Sjónvarpi Símans og munu áhorfendur geta skipt á milli leikja á einfaldan hátt,“ segir í fréttatilkynningu.

Næstkomandi fimmtudag muni Tómas Þór, ritstjóri enska boltans, og félagar hita upp fyrir komandi tímabil. Þar verði farið nánar yfir þær breytingar sem framundan séu á útsendingum enska boltans á Síminn Sport ásamt því að fara yfir allt það helsta sem snýr að komandi tímabili. Þátturinn verður í opinni dagskrá á Sjónvarp Símans kl. 20:00 fimmtudaginn 15. ágúst.