Matarbloggarinn Gígja Sigríður Guðjónsdóttir sem bloggar fyrir www.gottimatinn.is deildi á dögunum uppskrift af ómótsstæðilegum smákökum sem inniheldur meðal annars hnetusmjör sem er vinsælt innihaldsefni í baksturinn um þessar mundir. Við hvetjum alla til að prófa að baka þessar kökur í aðdraganda jólanna.
Innihald:
100 g smjör
1 bolli hveiti
⅔ bolli púðursykur
3 msk. hnetusmjör (gróft eða fínt)
150 g Rolo (2,5 lengja)
1 stk. egg
½ tsk. salt
½ tsk. lyftiduft
1 tsk. vanilludropar
Uppskriftin gerir um 15 kökur.
Aðferð:
Ofninn er hitaður í 180 gráður og blástur.
Smjörið er brætt í potti.
Næst er smjörinu og púðursykrinum blandað saman og hrært vel.
Eggi og hnetusmjöri er síðan bætt út í og næst restinni af innihaldsefnunum.
Það er fínt að skera Rolo-ið í tvennt eða smærra.
Deigið er sett í skál og inn í ísskáp í klukkustund.
Næst eru mótaðar litlar kúlur, fínt að ýta aðeins niður á kúlurnar með skeið áður en þær fara inn í ofn. Það mun líklega leka aðeins af karamellunni út fyrir kökurnar en það er allt í lagi það er nóg af henni inn í kökunum.
Kökurnar fara í ofninn í 10-12 mínútur og kældar í 10 mínútur áður en þær eru teknar af plötunni.
Sjá nánar hér: http://www.gottimatinn.is/uppskriftir/kokur/smakokur/smakokur-med-hnetusmjori-og-rolo-sukkuladi/1133