Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir í vetur við veiðihúsið Langárbyrgi við Langá á Mýrum.

Byggð hefur verið ný álma við húsið og er hún á tveimur hæðum. Á efri hæðinni eru sex ný svefnherbergi fyrir veiðimenn, sem og geymsla. Bætast þessi herbergi við þau tólf sem eru í eldri hluta hússins. Þetta þýðir að 18 herbergi eru nú fyrir veiðimenn og geta því fleiri verið einir í herbergi kjósi þeir það.

Á neðri hæð viðbyggingarinnar eru þrjú til fjögur herbergi fyrir starfsfólk veiðihússins og staðarhaldara árinnar. Framkvæmdunum er nú lokið og verður viðbyggingin tekin í notkun þegar veiði hefst í ánni nú í vikunni. Veiðihúsið Langárbyrgi var reist árið 1998.