Eyþór Rúnarsson er einn fremsti matreiðslumeistari landsins en hann ákvað upphaflega að fara í kokkanámið þar sem það innihélt enga stærðfræði. Eyþór hefur unnið sem yfirkokkur á mörgum af fremstu veitingastöðum landsins og var meðlimur íslenska kokkalandsliðsins frá árinu 2005 til 2011. Í dag starfar hann sem yfirkokkur hjá Múlakaffi. Eyþór deilir uppskrift vikunnar með lesendum.

Eyþór Rúnarsson.
Eyþór Rúnarsson.

Léttsýrt grænmeti

Innihald:

  • Safi úr 1 sítrónu
  • 2 msk agave síróp
  • 2 msk ólífuolía
  • 200 gr gulrætur, skrældar
  • 4 sellerí stiklar, skrældir
  • 2 msk eplaedik
  • Sjávarsalt

Aðferð:

  • Setjið sítrónusafann, agave sírópið og ólífuolíuna saman í skál og blandið vel saman með písk.
  • Skerið allt grænmetið fínt niður og setjið út í skálina.
  • Smakkið til með salti og pipar.

Grillaðar kjúklingalundir í sriracha sósu

Innihald:

  • 600 gr kjúklingalundir
  • 1 lime
  • 2 msk srirache sósa
  • Sjávarsalt

Aðferð:

  • Setjið lundirnar í fat með sósunni og limesafanum.
  • Kryddið með salti og veltið lundunum vel upp úr öllu saman.
  • Setjið lundirnar í efri hilluna á sjóðandi heitt grillið og grillið í 3 mínútur á hvorri hlið eða þar til lundirnar eru eldaðar í gegn.

Kotasælusalat

Innihald:

  • 500 gr kotasæla
  • 4 stk fínt skorinn vorlaukur
  • 1 stk rauð paprika smátt skorin
  • Börkur og safi af 1 stk lime
  • 1/3 kóríanderbréf
  • 1 tsk sambal oelek chilimauk
  • Sjávarsalt

Aðferð:

  • Setjið allt hráefnið saman í skál og smakkið það til með salti.

Meðlæti:

Innihald:

  • 1 haus iceberg salat
  • 1/3 kóríanderbréf

Aðferð:

  • Takið salatblöðin utan af iceberg salatinu og rífið kóríanderinn niður.
  • Setjið allt hráefnið á borðið og raðið ykkar tacoi saman eftir smekk.