Ásta S. Fjeldsted hefur verið ráðin forstjóri Festi, móðurfélags N1, Elko og Krónunnar, en hún hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra Krónunnar síðastliðin tvö ár. Ásta tekur við starfi forstjóra Festi frá og með deginum í dag en mun fyrst um sinn einnig gegna starfi framkvæmdastjóra Krónunnar, að því kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Magnús Kr. Ingason, sem var tímabundið ráðinn forstjóri eftir að Eggert Þór Kristófersson lét af störfum, mun samhliða stíga niður sem forstjóri og taka aftur við fyrra starfi sem fjármálastjóri Festi.

Sjá einnig: Ásta kaupir fyrir 20 milljónir í Festi

Ásta hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra Krónunnar frá árinu 2020. Áður var hún framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands frá 2017. Ásta starfaði fram til þess hjá þremur alþjóðlegum fyrirtækjum í meira en áratug.

Hún starfaði fyrir ráðgjafafyrirtækið McKinsey & Company frá árinu 2012, bæði á skrifstofum þess í Tókýó og Kaupmannahöfn, þar sem hún tók þátt í eða leiddi fjölda smærri og stærri greininga- og umbreytingaverkefni. Áður starfaði hún hjá IBM í Danmörku og stoðtækjaframleiðandanum Össuri hf., bæði í Frakklandi og á Íslandi. Ásta er vélaverkfræðingur með M.Sc. gráðu frá DTU, Tækniháskólanum í Danmörku.

Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi:

„Efst í huga mér er þakklæti fyrir traustið, en Festi ásamt rekstrarfélögum þess (N1 ehf., ELKO ehf., Krónan ehf., Festi fasteignir ehf., Bakkinn vöruhótel ehf. og N1 Rafmagn ehf.) starfar á afar spennandi og síkvikum mörkuðum, sem hafa raunveruleg áhrif á lífskjör almennings á Íslandi. Ábyrgð okkar sem þar störfum er því mikil og ljóst að vegferð félagsins þarf að vera í stöðugri þróun. Það eru forréttindi að fá að vinna áfram með öllu því öfluga fólki, sem starfar innan Festi og rekstrarfélaganna.“

Guðjón Reynisson, stjórnarformaður Festi:

„Það er mikill styrkur að fá Ástu S. Fjeldsted til að leiða það öfluga teymi sem hjá fyrirtækinu starfar og móta með okkur framtíðarstefnu þess. Framundan eru spennandi tímar og mikil sóknartækifæri. Ásta hefur bæði reynslu af rekstri í smásölugeiranum eftir árin hjá Krónunni en jafnframt alþjóðlega reynslu í stefnmótun og umbótaverkefnum fyrir stórfyrirtæki í öðrum geirum. Við erum stolt af því að fá jafn öfluga konu til að leiða fyrirtækið.“