Berglind Ólafsdóttir hefur verið ráðin fjármálastjóri Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss úr hópi 39 umsækjenda en hún mun hefja störf þann 1. maí.
Berglind er viðskipta- og rekstrarfræðingur að mennt. Hún hefur víðtæka stjórnunarreynslu, en sl. aldarfjórðung hefur hún starfað við stjórnun rekstrar-, fjármála og mannauðsmála, síðast sem framkvæmdastjóri Borgarleikhússins og áður um árabil hjá Reykjavíkurborg þangað sem hún kom úr einkageiranum.
„Berglind er mjög öflug fjármála- og rekstrarmanneskja og þekkir það að starfa í þágu almennings og einnig vel inn á menningarrekstur – en hvort tveggja er mikill kostur í þessu húsi,“ er haft eftir Svanhildi Konráðsdóttur, forstjóra Hörpu í fréttatilkynningu.
„Starf fjármálastjóra Hörpu er án nokkurs vafa krefjandi verkefni sem ég er þakklát fyrir að vera treyst fyrir. Ég nýt mín best í skapandi starfsumhverfi þar sem faglegur og rekstrarlegur metnaður fara saman og hlakka mjög til að tilheyra þeim öfluga starfshópi sem starfar í Hörpu þessu mikilvæga og margverðlaunaða tónlistar- og ráðstefnuhúsi þjóðarinnar,“ er einnig haft eftur Berglindi Ólafsdóttur.
Starfsfólk og stjórn Hörpu þakkar fráfarandi fjármálastjóra, Auði Árnadóttur fyrir afar ánægjulegt samstarf og vel unnin störf síðastliðin 7 ár og óskar henni velfarnaðar á nýjum starfsvettvangi.