Birgir Örn Arnarson hefur verið ráðinn til að stýra áhættustýringu VÍS og leiða mótun áhættustýringar í hinu sameinaða félagi VÍS og Fossa. Fyrst um sinn verður VÍS móðurfélag Fossa en stefnt er að því að tryggingarekstur, fjárfestingarbanki og eignastýring verði saman undir einu móðurfélagi.

Hjá VÍS mun Birgir bera ábyrgð á samhæfðri áhættustýringu sem er grunnurinn að ákvarðanatöku í fjárfestingum og rekstri félagsins. Samhliða ráðningu Birgis verður gerð sú skipulagsbreyting hjá félaginu, að starf tryggingastærðfræðings tilheyrir nú sviði áhættustýringar.

„Ég hlakka til að taka þátt í spennandi vegferð félagsins en sameiningin við Fossa og stofnun SIV eignastýringar fela í sér fjölbreytt tækifæri. Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum og taka þátt í því að móta samstæðuna til framtíðar,“ segir Birgir.

Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS, segir mikinn liðsstyrk vera í Birgi og að hann sé reynslumikill stjórnandi á sviði áhættustýringar. „Reynsla hans og menntun eiga eftir að leika mikilvægt hlutverk hjá VÍS á komandi misserum, ekki síst í þróun og mótun áhættustýringar hjá hinu sameinaða félagi VÍS og Fossa.“

Birgir hefur meðal annars gegnt stöðu framkvæmdastjóra áhættustýringar hjá PayPal Europe og yfirmanns lausafjárgreiningar í PayPal samstæðunni. Hann starfaði einnig sem yfirmaður markaðsáhættugreiningar á fjárfestingasviði alþjóðlega tryggingafélagsins Zurich.

Hann er með doktorspróf í kennilegri og hagnýtri aflfræði frá Cornell-háskólanum í Bandaríkjunum og er jafnframt með próf í verðbréfaviðskiptum.