Einar Sigursteinn Bergþórsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri vátryggingasviðs hjá Verði tryggingum. Hann mun hefja störf 1. janúar næstkomandi og mun taka sæti í framkvæmdastjórn félagsins.

„Það er mikill fengur fyrir okkur hjá Verði að fá Einar til liðs við okkur. Hann hefur víðtæka þekkingu og reynslu sem mun styrkja teymi Varðar enn frekar í þeirri vegferð að bjóða viðskiptavinum okkar alltaf upp á framúrskarandi þjónustu og lausnir,” segir Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir forstjóri Varðar.

Einar Sigursteinn kemur til Varðar frá N1 þar sem hann hefur gegnt stöðu forstöðumanns orkusviðs frá því í febrúar 2022. Þar bar hann ábyrgð á að byggja upp og þróa starfsemi fyrirtækisins á raforkumarkaði.

Áður starfaði Einar sem forstöðumaður viðskiptastýringar hjá Landsvirkjun og við verkefnastýringu hjá Equinor. Einar er með M.Sc. gráðu í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands og próf í verðbréfamiðlun.

„Vörður er öflugt og framsækið tryggingafyrirtæki í hröðum vexti á spennandi markaði. Því er ég fullur tilhlökkunar að verða hluti af því öfluga teymi sem starfar hjá Verði og taka þátt í að efla fyrirtækið í þeim áhugaverðu verkefnum sem fram undan eru,” segir Einar Sigursteinn.