Sigríður Auður Arnardóttir hefur verið ráðin til Orkuveitu Reykjavíkur sem stjórnandi á nýju fagsviði Samhæfingar og stjórnsýslu sem heyrir undir forstjóra. Sigríður hefur gegnt embætti ráðuneytisstjóra í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, áður umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, frá árinu 2014 eftir að hafa verið staðgengill ráðuneytisstjóra. Greint er frá ráðningu Sigríðar í fréttatilkynningu.
„Um er að ræða nýtt fagsvið og starf sem er m.a. ætlað að auka vægi samhæfingar verkefna og samtals Orkuveitusamstæðunnar við stjórnvöld, hagaðila og aðra til samræmis við hlutverk og metnaðarfull markmið samstæðunnar á sviði loftslags- orku- og umhverfismála,“ segir í fréttatilkynningu.
„Víðtæk reynsla Sigríðar af störfum innan Stjórnarráðsins og þekking á íslenskri stjórnsýslu verður þýðingarmikil fyrir starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur í þessu nýja og mikilvæga starfi. Ég býð hana hjartanlega velkomna til starfa,“ segir Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, í fréttatilkynningu.
Sigríður Auður, sem er með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands, gegndi áður embætti skrifstofustjóra á skrifstofu umhverfis og skipulags frá árinu 2012, skrifstofu laga og stjórnsýslu frá 2007 og skrifstofu laga og upplýsingamála í ráðuneytinu frá 2003. Hún hefur verið formaður Ofanflóðanefndar frá árinu 2013, auk þess að hafa stýrt og setið í fjölda starfshópa og nefnda á vegum Stjórnarráðsins.