Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) hafa ráðið Gústaf Steingrímsson sem hagfræðing samtakanna og hóf hann störf í byrjun árs. Gústaf tekur við starfi Yngva Arnar Kristinssonar sem kominn er á þriðja æviskeiðið, að því er segir í tilkynningu SFF.
Gústaf starfaði í Landsbankanum í 16 ár, þar af um 12 ár í greiningardeild bankans. Þar sinnti hann greiningum og spám ýmsa þætti íslensks efnahags- og fjármálalífs. Þar áður starfaði hann sem blaðamaður á Viðskiptablaðinu frá 2000 til 2006.
Gústaf er með B.A. próf í hagfræði frá Háskóla Íslands auk meistaraprófs í fjármálum frá sama skóla.
„Um leið og við kveðjum Yngva með þakklæti fyrir farsælt starf í þágu SFF, þá er afar ánægjulegt að fá Gústaf inn í samhentan hóp starfsmanna okkar. Starf hagfræðings hjá SFF er ein af þungamiðjunum í starfsemi okkar og því afar mikilvægt að fá góðan mann um borð. Gústaf kemur inn með haldgóða þekkingu og reynslu af fjármálamarkaði. Hjá SFF starfa nú sex starfsmenn,” segir Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja.