Halla Kristjánsdóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri eignastýringar hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (LSR). Þetta kemur fram í tilkynningu. Halla hefur yfirgripsmikla þekkingu af starfsemi LSR, en hún hóf störf á eignastýringarsviði sjóðsins árið 2006 og hefur síðan þá sinnt ýmsum störfum innan LSR.
Undanfarin ár hefur Halla gegnt stöðu sjóðsstjóra erlendra fjárfestinga í eignastýringu LSR. Áður hafði hún verið sjóðsstjóri erlendra framtakssjóða og sjóðsstjóri Séreignar LSR ásamt því að taka þátt í stefnumótun og verkefnastjórnun innan sviðsins. Halla situr jafnframt í hluthafaráðum fagfjárfestasjóða og sinnti um árabil dæmatímakennslu í viðskiptadeild HR.
Halla er með B.s. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og M.sc. gráðu í fjármálum frá Boston College, Carroll Graduate School of Management. Hún hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.
LSR er stærsti lífeyrissjóður landsins, en við síðustu áramót numu eignir sjóðsins rétt um 1.347 milljörðum króna. Ríflega 30.000 sjóðfélagar greiða til sjóðsins í hverjum mánuði og lífeyrisþegar eru um 23.000 talsins.