Íris Rún Karlsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri samstarfs (e. Head of Partnerships) hjá Klöppum. Klappir dreifa hugbúnaðinum í gegnum net samstarfsaðila sem nær til um 25 landa.

Í nýja starfi sínu hjá Klöppum mun Íris bera ábyrgð á að afla nýrra viðskiptatækifæra sem og að efla samstarf við samstarfsaðila fyrirtækisins.

Íris gegndi áður stöðu yfirmanns þjónustu og sjálfbærni hjá Klöppum frá árinu 2023. Hún starfaði áður í áratug hjá Chr. Hansen í Danmörku í ýmsum störfum en allar á sviði sjálfbærni.

„Þetta er nýtt og spennandi starf hjá Klöppum, og ég er full tilhlökkunar að takast á við það. Það er mjög hvetjandi að fá tækifæri til að vinna enn frekar með hugbúnað Klappa og leita nýrra sóknartækifæra,“ segir Íris.

Hún var meðal annars yfirmaður umhverfismála og var yfir teymi sérfræðinga hjá Chr. Hansen, sem er leiðandi á heimsvísu í lífvísindum og náttúrulegum hráefnum.

„Íris býr yfir traustum stjórnunargrunni og hefur mikla reynslu af því að byggja upp árangursrík teymi í sjálfbærni, þjónustu og ráðgjöf. Við erum mjög ánægð með að hún hafi tekið að sér að leiða uppbyggingu á alþjóðlegum dreifileiðum Klappa í gegnum samstarfsnet okkar sem nær um allan heim,“ segir Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa.