Jóhanna Helga Viðarsdóttir hefur verið ráðinn sviðsstjóri nýs sviðs hjá Skeljungi sem nefnist Sjálfbærni og stafræn þróun. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Á árunum 2018 til 2020 sinnti Jóhanna Helga ýmsum stjórnunarstörfum hjá Torgi, útgáfufélagi Fréttablaðsins, DV og tengdra miðla, síðast sem forstjóri félagsins. Áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar og markaðsmála hjá 365 miðlum. Þá veitti hún verkefnastofu Reiknistofu bankanna forstöðu á árunum 2014 til 16.

Jóhanna er með MBA-gráðu og diplóma í verkefnastjórnun og leiðtogahæfni frá Háskóla Íslands.

Starfsemi gamla Skeljungs, sem heitir nú SKEL fjárfestingarfélag var skipt upp í desember 2021 og er Skeljungur nú orðið rekstrarfélag í eigu SKEL fjárfestingafélags.

Þórður Guðjónsson, framkvæmdastjóri Skeljungs, segir í tilkynningunni að stefna Skeljungs sé að þjóna orkuþörf fyrirtækja á hagkvæman og öruggan máta í sátt við samfélagið og umhverfið.

Þórður Guðjónsson, framkvæmdastjóri Skeljungs:

„Þau gildi sem við viljum hafa að leiðarljósi eru jákvæðni, metnaður og að við séum ávallt tilbúin í breytingar. Hjá félaginu starfa í dag tæplega 70 manns og eru þau gildi sem við setjum okkur mikilvægur þáttur í því að byggja upp menningu sem styður við hagkvæman rekstur og ekki síst þær nauðsynlegu breytingar sem þarf að vinna að í átt að aukinni sjálfbærni - til hagsbóta fyrir umhverfið og samfélagið.

Með stofnun nýja sviðsins og ráðningu Jóhönnu Helgu, viljum við leggja enn meiri áherslu á að vinna markvisst í sjálfbærnivegferð Skeljungs ásamt því að efla þjónustu við viðskiptavini félagsins með framúrskarandi stafrænum lausnum.”

Jóhanna Helga Viðarsdóttir:

“Ég hlakka til að leiða nýtt svið og láta verkin tala með því góða fólki sem starfar hjá Skeljungi. Það er mikilvægt að rýna það sem vel er gert, koma augu á það sem betur má fara og setja okkur markmið um að gera enn betur. Það er heilshugar ætlun okkar hjá Skeljungi að gera sífellt betur í sjálfbærnivegferð félagsins.”