Julie Kozack, yfirmaður, sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hér á landi, er að hætta störfum og mun taka við sem yfirmaður sendinefndar sjóðsins í Póllandi og Litháen. Hún sat fyrir svörum á reglubundnum símafundi sjóðsins um stöðu efnahagsmála hér á landi í gær. Þar tilkynnti hún um þessa breytingu og sagði fundinn þann síðasta sem hún sitji.
Kozak tók við sem yfirmaður sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins af Mark Flanagan í október árið 2010. Viðtekin venja er hjá sjóðnum að skipta um fólk á tveggja til þriggja ára fresti. Flanagan hafði verið yfirmaður sendinefndarinnar hér síðan haustið 2008.
Á fundinum í gær vakti Kozack m.a. athygli á því að verðbólga er að aukast hér og verði stjórnvöld að grípa inn í þá þróun. Þá benti hún á mikilvægi þess að afnema gjaldeyrishöft. Koma verði í veg fyrir að afnámið komi niður á þeim árangri sem náðst hafi fram til þess.
Kozack sagði næstu endurskoðunar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á stöðu mála hér vænta eftir um hálft ár. Það verði gert undir stjórn nýs yfirmanns.
JJulie Kozack, yfirmaður sendinefndar AGS á Íslandi, ásamt Franek Rozwadowski, sendifulltrúa sjóðsins, á fundi í Seðlabankanum.