Lilja Björk Guðmundsdóttir hefur verið ráðin yfirlögfræðingur Samtaka iðnaðarins. Greint er frá ráðningu hennar í fréttatilkynningu.

Lilja Björk hefur frá árinu 2021 starfað hjá Samtökum iðnaðarins sem viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði þar sem hún hefur meðal annars haft umsjón með fjölmörgum starfsgreinahópum innan samtakanna.

Lilja Björk er með BA og ML í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og LL.M. í evrópskum stjórnskipunarrétti frá Háskólanum í Granada auk þess sem hún hefur málflutningsréttindi fyrir Héraðsdómi.

Áður en hún kom til starfa hjá Samtökum iðnaðarins starfaði Lilja Björk hjá Rauða krossinum sem lögfræðingur og teymisstjóri í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd.