Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Félags viðskipta- og hagfræðinga (FVH) sem var haldinn fyrr í sumar.

Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Félags viðskipta- og hagfræðinga (FVH) sem var haldinn fyrr í sumar.

Stjórn félagsins skipa fyrir starfsárið 2024-2025

Elka Ósk Hrólfsdóttir, formaður

Telma Eir Aðalsteinsdóttir, varaformaður

Þórarinn Hjálmarsson, gjaldkeri

Anna Gréta Hafsteinsdóttir

Ása María Þórhallsdóttir

Birgitta Maren Einarsdóttir

Gísli Már Gíslason

Guðmundur Halldór Björnsson

Jóhann Sveinn Friðleifsson

Sverrir Falur Björnsson

Fimm nýir stjórnarmenn buðu sig fram til stjórnar og hlutu kjör: Telma Eir Aðalsteinsdóttir, Anna Gréta Hafsteinsdóttir, Birgitta Maren Einarsdóttir, Ása María Þórhallsdóttir og Guðmundur Halldór Björnsson. Jafnframt létu fimm af störfum, þau: Hildur Gunnarsdóttir, Hulda Hallgrímsdóttir, Sara Kristín Rúnarsdóttir, Sigurður Tómasson og Tryggvi Másson.

Anna Margrét Steingrímsdóttir gegnir þá stöðu framkvæmdastjóra þriðja árið í röð.

FVH er fagfélag háskólamenntaðra viðskipta- og hagfræðinga auk áhugafólks um fræðin. Hlutverk FVH er að vekja athygli á málefnum í íslensku viðskipta- og efnahagslífi með reglulegum fræðsluerindum, stuðla að endurmenntun og eflingu tengslanets. Félagið stendur einnig fyrir kjarakönnun sem framkvæmd er annað hvert ár.